Eitt blogg á ári, eða svona hér um bil..

"Ég ætla ekki að vera svo djarfur að segjast ætla að blogga reglulega aftur, en kannski henda inn einni og einni línu hérna við og við."

Þetta er tilvitnun í sjálfan mig, en þessari þvælu ældi ég út úr mér í síðustu færslu. Augljóst er að ég hef ekki á nokkurn hátt staðið við ofangreinda fullyrðingu, því það eru jú þónokkur tungl síðan ég skrifaði hérna.

Ýmislegt hefur gengið á síðastliðna 9 mánuði en þar sem ég er latur ætla ég bara að drepa á því nýlega. Magdalena litla heldur áfram að stækka og braggast, en hún er að verða 1 árs þann 13. maí. Það er alveg ótrúlegt að hugsa til baka því þetta er búið að vera með ólíkindum fljótt að líða. Hún meira að segja tók sitt fyrsta skref fyrir ekki löngu síðan, en er ekki farin að labba enn. Það styttist samt í það, hún er komin á fullt, labbandi meðfram og fleira í þeim dúr.

Við fjölskyldan fluttumst síðan búferlum og erum nú komin í Árbæinn, nánar tiltekið í Hraunbæinn, og líkar vel. Þann 1. febrúar síðastliðinn fórum við Ragga yfir 4 ára línuna, en síðustu 4 ár hafa markað mikil kaflaskipti í mínu lífi og við gætum ekki verið ánægðari!

Nú í vor er ég svo að útskrifast úr sérnáminu í ljósmyndun, og ef allt gengur að óskum erum við á leið til baunaveldisins í haust. Svo er mál með vexti að ég er að sækja um í ljósmyndaskóla í Danmörku, nánar tiltekið Medieskolerne í Viborg, og komist ég þar inn hefst námið í haust. Ég fæ víst svar einhvern tímann í maí, þannig maður krossleggur fingur og vonar hið besta. Hér með óska ég eftir góðum straumum!

Um daginn setti ég svo upp vefsíðu (HÉR), en það var eitt verkefnið í skólanum. Þið megið gjarnan skoða og koma með athugasemdir ef ykkur finnst eitthvað ábótavant. Ég er algjör nýgræðingur í vefsíðugerð þannig það er örugglega hægt að finna eitthvað.

Svo var ég að græja svona "artist page" á Facebook, þar sem þið megið gjarnan like-a mig (HÉR) ef þið viljið. Þá fáið þið tilkynningar og svona um nýjar uppfærslur og fleira tengt því sem ég er að brasa í ljósmynduninni. 

Í dag var svo "litli" mágurinn minn hann Einar Gylfi að fermast. Falleg athöfn, fín veisla og drengurinn sáttur með daginn. Það er ekki hægt að biðja um meira.

Nú held ég samt að ég fari að hnýta fyrir þessa færslu. Er búinn að vera frekar tuskulegur síðan í gær og ætti að koma mér í bælið, sjá hvort ég geti ekki fest svefn og vonandi sofið þetta slen úr mér svo ég komist í skólann á morgun. Ég nefninlega lagði mig í kvöld eftir veisluna og er skyndilega ekki svo þreyttur...

Vil að lokum minna á Flickrið mitt, en það koma reglulega inn myndir þar. Ef þið like-ið Facebook síðuna fáið þið tilkynningar um nýjar uppfærslur, þannig ég hvet ykkur til að gjöra svo. Ég enda svo færsluna á mynd af fermingardrengnum, en það var jú ykkar heittelskaði bloggjöfur sem myndaði.

Meira....einhvern tímann...

5587104576_6f9b457b09_z


"Vertu fyrst(ur) vina þinna að líka þetta"

Daginn daginn góðir hálsar! Nú er að nálgast eitt og hálft ár frá síðustu færslu, en það held ég að sé nýtt persónulegt met í tíma á milli blogga hjá mér. Ég ætla ekki að vera svo djarfur að segjast ætla að blogga reglulega aftur, en kannski henda inn einni og einni línu hérna við og við.Það sem mér liggur á hjarta þessa stundina er Facebook samhæfni vefseturs Morgunblaðsins.

Ég var að lesa þessa frétt: http://mbl.is/mm/frettir/erlent/2010/07/21/tugir_letust_i_sprengjuaras_i_irak/

Það er akkúrat ekkert gleðilegt við þessa frétt, enda hörmulegur atburður sem átti sér þarna stað. "Að minnsta kosti 28 létu lífið þegar bílsprengja sprakk í borginni Baquba, norður af Bagdad í Írak, nú síðdegis. 46 særðust í sprengingunni, sem varð nálægt mosku."

Að loknum lestri á þessari frétt hefur maður þann möguleika á að "líka þetta"  á Facebook, og fæ ég eftirfarandi skilaboð:

 "Vertu fyrst(ur) vina þinna að líka þetta"

Ég verð að segja eins og er að ég er ekki að sjá hvað er hægt að líka við þessa frétt, og enn síður af hverju ég ætti að vilja vera fyrstur af mínum Facebook tengiliðum til þess að lýsa yfir hrifningu minni á mannskæðri bílasprengingu úti í heimi. Sama hvað ég reyni, þá get ég einfaldlega ekki séð tilganginn í þessu. Það er alveg sniðugt að geta "líkað við" greinar á Mbl.is, t.d. tilkynningar um lottóvinningshafa og aðrar jákvæðar og ánægjulegar fréttir úr samfélaginu, en að geta líkað við svona fréttir finnst mér alveg ótrúlegt.

Kannski er þetta bara eitthvað tuð í mér, en ég bara sé ekki tilganginn með þessu. Endilega látið skoðanir ykkar í ljós (þ.e.a.s. ef einhver les þessa rykföllnu síðu ennþá) því ég trúi ekki að ég sé sá eini sem sér eitthvað að þessu.

Later peeps ! 


Alltaf fjör í draumheimum!

Það hlaut að koma að því að eitthvað mundi gerast hérna, ekki satt? Þetta verður nú engin svaka færsla, er lengi búinn að plana það að skrifa einhverja smá færslu hérna til að hnoða lífið aftur í þessa annars ágætu síðu, og nú er komið að því.

Í nótt dreymdi mig afskaplega sérstakan draum. Það var þannig að ég og Guðjón Már vorum staddir í Öskju (þar eru flestar náttúruvísindagreinarnar kenndar í HÍ). Ég tók upp stóra og djúsý langloku, og þegar ég ætlaði að fara að gæða mér á henni stoppaði Guðjón mig og sagði:

"Ekki ætlarðu að borða pepperóníið sem er á þessu!? Notaðu þetta, miklu betra!" 

Hann tekur upp stórar pepperóní sneiðar úr vasa sínum og réttir mér brosandi. Ég tek við þessu og skipti út pepperóníinu á langlokunni minni. Nú þegar ég ætlaði að bíta í kræsingarnar,  stoppar hann mig aftur og tekur til máls:

"Hey! Ætlarðu ekki að hita þetta upp?"

"Hvernig á ég að gera það?" Svara ég.

Hann segir ekki orð, heldur tekur upp litla kínverjasprengju úr vasa sínum, setur í samlokuna mína og kveikir á. Svo springur langlokan mín í tætlur sem þeytast út um allt gólf. 

Ég varð ekki lítið sár og svekktur yfir örlögum langlokunnar, en ég veit ekki hvað gerðist næst því þarna vaknaði ég.

 

Það er alltaf gaman í draumheimum!


Álfar, tröll og....drekar...

Er í vinnunni þannig þetta verður stutt. Langaði bara að deila með ykkur skemmtilegu atviki sem átti sér stað í gærkvöldi. Við vorum í rólegheitum að glápa á Law & Order þegar Raggan spyr:

"Eru miklar líkur á að eignast d..d...drekabörn?"

Það sem hún var að meina var hvort það væru miklar líkur á að barnið manns væri dvergur, en mismælti sig svona allsvakalega! 

Ég fann mig knúinn til þess að deila þessu með heiminum, enda með betri mismælum sem ég hef heyrt!

midget


12. Desember: Fæðingardegur frelsarans! En hvað gerðist fleira?

Góðan dag! Já eða gott kvöld eða jú nótt! Sumir ganga jafnvel svo langt að segja að nú sér árla morguns, en það gildir einu!

Þessi færsla er tileinkuð 12. desember, þeim merkisdegi! Eins og mörg ykkar eflaust vitið nú þegar, þá er 12. desember sá dagur er ég fyrst dró andann, þandi lungun og sagði "daaaa" næstu hvað.....15 árin eða svo. En ef við lítum aðeins framhjá þessum stórviðburði mannkynssögunnar og könnum hvað fleira hefur gerst á þessum degi í sögunni, þá kemur ýmislegt merkilegt í ljós. Hér ætla ég að taka saman fyrir ykkur nokkur atriði sem gerst hafa á 12. desember í gegnum árin og aldirnar.

12. Desember, 1642
Hollenski landkönnuðurinn Abel Tasman uppgötvar Nýja-Sjáland (it´s a sign, mér er greinilega ætlað að koma þangað!)

12. Desember, árið 1800
Á þessum degi var Washington DC gerð að höfuðborg Bandaríkjanna.

12. Desember, árið 1915
Fyrsta flugvélin sem gerð var úr málmi flaug í fyrsta skipti. Vélin var hin þýska Junkers J1.

12. Desember, árið 1925
"Motel Inn"
opnaði og var það fyrsta mótelið í heiminum. Það var staðsett í San Luis Obispo, Kaliforníu.

12. Desember, árið 1963
Kenýa losnaði undan yfirráðum Breta og öðlaðist sjálfstæði.

Þótt undarlegt megi kunnast, þá er ég ekki eini heimsþekkti einstaklingurinn sem fæðst hefur þann 12. desember. Þó ég sé í svítunni, þá eru ýmisr aðrir þekktir kappar deila kústaskáp á mínum afmælisdegi. Svo dæmi séu tekin þá fæddist Edvard Munch 12. desember árið 1863, en hann er einna þekktastur fyrir að hafa málað Ópið, og Frank Sinatra fæddist þann 12. desember árið 1915.

 

Ætli þetta sé ekki komið nóg um þennan ágæta dag. Annars er svo sem ekki margt í fréttum. Erum á Stokkseyri í augnablikinu, förum í bítið í fyrramálið því Raggan þarf jú að mæta í tímana sína í skólanum og ég þarf að vinna kl. 14:00. Er að flytja stuff af diskum hérna yfir á sjónvarpsflakkarann okkar áður en ég fer að sofa, erum alltaf að sanka að okkur efni fyrir imbann.

Held ég segi þetta gott samt, síðasta myndin var að klára að afritast þannig ég ætla að henda mér í bælið.

Vona að þið hafið haft gagn og gaman af þessari færslu...því ef ekki...who gives a freakin' f*ck!

Bless BLÓMIN MÍN!

 


Klukk í leyfisleysi!

Á flakki mínu um undraveröld veraldarvefsins rakst ég á þetta á síðunni hjá henni múttu. Þó ég sé ekki klukkaður þá ákvað ég nú barasta samt að gera þetta, þar sem klukkan er farin að ganga þrjú og ég er enn fullur orku!

--------------------------

1. Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina.

Bæjarvinnan á Stokkseyri
MS á Selfossi (foj!)
Árvirkinn
BT Skeifunni (núverandi)

2.  Fjórar bíómyndir sem ég held upp á.

American Psycho
Donnie Darko
Lord of the Rings Trilogían
Scarface

3. Fjórir staðir sem ég hef búið á.

Hásteinsvegur, Stokkseyri
Miklabraut, Reykjavík
Laugarásvegur, Reykjavík
Fjórði staður væntanlegur...

4. Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum.

Holland
Ítalía
Tyrkland
Spánn

5. Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar.

The Simpsons
Fóstbræður
Friends
Futurama

6. Fjórar síður sem ég skoða daglega.

Vefur Morgunblaðsins (mbl.is)
N4G, leikjanördavefur (n4g.com)
Ljósmyndakeppni (ljosmyndakeppni.is)
Flickr (flickr.com)

7. Fernt matarkyns sem ég held upp á.

Subway
Humar
Pizza
Kjúklingur

8. Fjórar bækur/blöð sem ég les oft.

Fréttablaðið
Lifandi Vísindi
24 Stundir
Morgunblaðið

9. Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna.

Í okkar eigin íbúð á Stokkseyri
Hálendi Íslands
Nýja Sjáland
Í siglingu um Kyrrahafið

10. Fjórir bloggarar sem ég klukka.

Ragga mín
Snorri bró
Vignir Ó
Herdís

--------------------------

Þannig er nú það! Heyrumst seinna...


Næturbrölt

Þá erum við hjúin komin aftur á klakann, komum heim þann 26. ágúst, eins og þið hafið nú flest tekið eftir. Þessa stundina er ég svo óþreyttur að ég ákvað að gerast svo djarfur að blogga hérna.

Mallorcaferðin var í alla staði frábær. Æðislegt að komast út í afslöppun með frúnni. Líka skemmtileg tilbreyting að vera í heimahúsi frekar en á hóteli. Nú tala ég eins og heimsfrömuður, þó raunin sé sú að ég haf aðeins einu sinni gist á hóteli og það var í fyrra!

Anyway...við fórum á Stokkseyri núna um helgina, komum skömmu fyrir kvöldmat á laugardeginum og fórum rúmum sólarhring síðar. Allt liðið var þar samankomið, gott og gaman að sjá familíuna aftur. Guðríður kom að vísu ekki fyrr en á sunnudeginum, en hún hafði verið í fjórhjólaferð með Guðmundi. Til allrar lukku var hjólið með í för á sunnudeginum og ég var rúntandi á því fram og til baka. Var mjög tregur að láta hjálminn frá mér þegar aðrir voru að fara að keyra! Raggan var nú ekki alveg á þeim buxunum, ja, eða leggings, að fara rúnt með mér. Henni leist satt best að segja ekkert á þennan fararskjót! En hún lét til leiðast og tók með mér rúnt og fannst bara hin besta skemmtun!

Flóki frændi og nafni minn hefur tekið stakkaskiptum á þessum annars stutta tíma sem við vorum í burtu. Það kjaftar af honum hver tuskan og hann jaskast út um allt, algjör stuðbolti! 

Við hittum aðeins á hann Valla, en hann var í miklum ævintýrum með einhverjar fjarstýrða korkflugvél sem þaut um loftin blá....og grasið grænt. Flugið gekk nú svona upp og ofan, en þó stórslysalaust!

Stefnan er sett á Stokkseyri aftur næstu helgi og þá verður Bacchus með í för. Mig er farið að þyrsta í smá öl og Stokkseyrarstemningu, þannig endilega látið mig vita ef það er eitthvað að gerast, nú eða þá ef það er ekkert að gerast en þið viljið láta hlutina gerast!

Ætla að slá botninn í þetta með þessum orðum, ætla að fara að hunskast í bælið og reyna að festa smá svefn!

Meira seinna!

 

 


Hitt og thetta...

Jamm og jaeja. Aetla ad henda hér inn nokkrum ordum ádur en vid förum til Palma.

Marinelandferd númer tvö var mjög skemmtileg. Vorum reyndar ekki frá opnun til lokunar thar sem gardurinn er ekki alveg jafn stór og vid héldum í fyrstu.  En thetta var gódur dagur, kannski í heitara lagi samt.

Um daginn fór Miguel med mig til Arenal sem er svona túristabaer hérna nálaegt. Ströndin thar er rosalega falleg og ad sjálfsögdu tók ég upp thrífótinn og smellti af nokkrum myndum tharna. Vid erum svo búin ad fara med Maríu og Einari í minigolf á stad sem heitir Golf Fantasia. Mjög flottur stadur og hörkustud. Thad tharf ekki ad spyrja ad thví hver vann *wink wink*.

Í fyrradag fórum vid med Maríu í búdir, og um kvöldid fórum vid öll út ad borda á Mallorgískum veitingastad sem ég barasta man ekki hvad heitir. En themad thar var Djöfullinn sjálfur, en hann kemur víst mikid vid sögu í menningarsögu Mallorca. Maturinn var rosalega gódur, átum á okkur nokkur göt.

Í gaer fórum vid med Maríu í smá labb hjá smábátahafnarsvaedi medfram sjónum í Palma. Virkilega fallegur stadur og mjög mikill hiti. Thví midur fékk Ragga greyid svo slaemt flog thegar vid komum heim, en hún lagdi sig strax og svaf thad sem betur fer úr sér. Algjört hörkutól! Um kvöldid fórum vid svo öll (Vid, Miguel, María og Einar) til Magaluf og gengum thar strandgötuna. Allt morandi í veitingastödum, minnti mann óneitanlega á Tyrkland í fyrra, nema hvad madur var látinn í fridi tharna. Endudum svo á stad sem ég man ekki hvad hét og átum thar. Thar var bodid upp á djúpsteiktan smokkfisk í forrétt, og believe it or not, thad var nú bara mjög gott! Vid baedi átum hann med bestu lyst.

Ég held  thad sé thá nokkurn veginn upptalid sem vid höfum verid ad gera frá sídustu faerslu. Thad er svo ýmislegt framundan hjá okkur. Í dag aetlum vid ad eyda deginum í Palma, spásserum eitthvad um thar og gerum okkur gladan dag. Á morgun förum vid í Aqualand sem eins og nafnid gefur til kynna vatnsgardur, s.s. sundlaugar og rennibrautir í öllum staerdum og gerdum. Ef vid verdum ekki of threytt thá gaeti verid ad vid förum til Soller eftir vatnagardinn. Soller er lítid fjallathorp umvafid fjöllum, ekki ósvipad og Valldemossa, á víst ad vera mjög fallegur stadur. Um helgina eda eftir hana verdur svo farid á strípalingaströnd sem heitir Streng. Thad er uppáhaldsströnd heimilisfólksins hérna og er víst alveg ótrúlega falleg.

Segi thetta gott núna, aetla ad fá mér eitthvad í gogginn og svo styttist í brottför til Palma.

Adiós!

Fleiri ord...

Ég sé thad ad ég er miklu duglegri ad blogga hérna úti en heima á fróni, madur aetti ad fara oftar út!

En anyway, thad er svo sem ekki margt ad frétta frá thví í gaer. Í dag skruppum vid til Palma thar sem vid skodudum okkur um í stórri verslunarmidstod. Keyptum ekki margt, en ég fékk mér 8gb minniskort fyrir vélina, újé. Gomlu kortin eru í minna lagi fyrir nýju vélina, thannig thad veitir ekki af plássinu. Kíktum svo í stórmarkad thar sem Miguel keypti inn thad sem vantadi. Thad verdur eitthvad kjotmeti í matinn í kvold. Hlakka mjog til, thessi madur er med thvílíkar og adrar eins tofrahendur! Allt sem hann gerir endar í veislu í munni manns.

Kvoldid er órádid hjá okkur ennthá, en mig langar svolítid ad taka stutta gongu og taka jafnvel nokkrar myndir í sólsetrinu.  

Á morgun aetlum vid aftur í Marineland. Heyrirdu thad mamma? Aftur! Nei nei, ég aetla ekki ad vera vondur, en vid erum samt ad fara aftur á morgun og aetlum ad maeta kl. 10 (thegar opnar) og fara kl. 17 (thegar lokar). Thad verdur mikid gaman og mikid myndad!

En ég held ég segi thetta bara gott í bili, aetla ad setjast adeins út í góda vedrid.

Bless í bili.

Guffi 


Nokkur orð

Skítt med thad sem ég sagdi i kommentunum, aetla ad henda inn smá faerslu herna thó Raggan sé nú nýbúin ad blogga um ferdina.

Thad er búid ad vera mjog gaman thad sem af er ferdinni. Hitinn er búinn ad vera í kringum 30 grádur og bara voda kósý. Fluginu okkar seinkadi thannig vid vorum komin seinna en reiknad var med. Fyrsta kvoldid fór bara í rólegheit og át, enda frekar svong eftir ferdalagid.

Í gaer tókum vid Ragga smá gongutúr hérna um nágrennid. Ég lýg thví ekki thegar eg segi ad ALLIR hérna eiga hunda. Svolítid skondid, thad er gelt ad manni vid hvert hús sem gengid er framhjá. Seinna um daginn var svo farid til Valdemossa, en thad er fjallathorp í gomlum stíl, vinsaell ferdamannastadur. Thad er virkilega fallegur stadur og gaman ad sjá. Um kvoldid var tekid thví rólega og vid horfdum á Nóa Albínóa!

Í dag voknudum vid snemma til ad fara í Marineland. Thar sáum vid hofrunga, saeljón og páfagauka bregda á leik. Páfagaukasýningin var ad vísu ekki eins stór og hún var á DVD-inum hennar Roggu, en engu sídur mjog skemmtileg. Gaman af thessum gaukum! Ég tók fullt af myndum og fyllti baedi minniskortin mín. Vorum reyndar ekkert rosalega lengi, svona um 3-4 tíma, en vid keyptum svona "come-back ticket", thad kostadi kúk á planka og okkur langar ad koma aftur tharna og vera lengur. Í dag er nefninlega einhver spaensk "fiesta" og allir voru í fríi, thannig thad voru ekki bara haugar af túristum tharna, heldur líka slatti af Spánverjum. Thannig vid forum aftur og aetlum tha ad vera frá upphafi til enda.

Ádur en vid fórum í Marineland tókst mér ad missa eina linsuna mína (sem betur fer thá ódýrustu) og hún datt í sundur. Eftir smá hark tókst mér thó ad koma henni saman og hún svínvirkar! Reyndar heyrast skrítin hljód í henni thegar hún er ad fókusa og hún er hávaerari, en hún virkar og thad er fyrir ollu.

Rétt í thessu vorum vid Ragga ad borda Pizza ala Miguel, en hann er alveg svakalegur kokkur. Gerir ekkert smá gódan mat, madur er bara á veitingahúsi twenty four seven!

En segjum thetta í bili, thetta er ordid svolítid meira en nokkur ord. Vid aetlum ad fara ad hafa thad kósý.

Adiós mis amigos! 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband