Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Einkunnir, afmæli og allt þar á milli!

Frá og með 12. desember halda jólasveinarnir til byggða og gefa krökkum gjafir og gotterí, ásamt einstaka kartöflum, og halda því áfram fram að jólum. Flestir halda að þessir gömlu skarfar komi í tilefni jólanna, samanber nafnið "Jólasveinar", en svo er ekki. Þetta ritúal hjá þeim er í beinu sambandi við afmælisdag minn. Aðfangadagur er svo hin svokallaða "12 daga hátíð", og þar með lýkur afmæli mínu. Svo með páskana, þá er það vegna.....æ nei, ég er búinn að bulla nóg!

Tökum nokkur skref til baka og komum okkur vel fyrir í raunheimi. Ég er kominn með allar einkunnirnar mínar:

* FJÖ1036 Inngangur að fjölmiðlun                                     >    8

* FSH1736 Myndvinnsla                                                      >    9

* MOF1036 Myndbygging og formfræði                                 >    9

* MTG1036 Týpógrafía og grafísk hönnun                             >    8

* TEX1024 Textameðferð                                                     >    9

* VMM1036 Vefsíðugerð, myndvinnsla og myndbandagerð    >    9

Ég er bara mjög sáttur með þetta. Verður samt að viðurkennast að þetta var allt frekar auðvelt, flest sem við vorum að gera í Photoshoppinu voru hlutir sem ég kunni nú þegar með öllu mínu fikti gegnum tímann, auk þess sem allir áfangarnir voru símat, s.s. ekkert lokapróf, engin leiðindi. Það er alltaf voða þægilegt. En þetta er búin að vera skemmtileg önn, kann vel við mig í þessu.

Afmælisdagurinn var góður. Þurftum reyndar að sinna hinum ýmsu erindum þann dag þar sem ég er svo lítið í fríi þessa dagana að maður þarf að nýta þá fáu frídaga sem manni hlotnast. Dagurinn byrjaði á því að tengdamamma kom um hádegisbilið og við skutluðum henni í vinnu til að geta fengið bílinn lánaðan yfir daginn. Þaðan lá leið okkar til Guðríðar systu og gemlingana hennar, þar sem við fengum varning (Simpsons) inn á flakkarann okkar og sóttum gíróseðilinn fyrir skólagjöldin í Iðnó, hafði gleymt honum þar í afmæli Flókamons. Við héldum svo okkar leið, því tíminn var eitthvað sem við höfðum ekkert voðalega mikið af.

Næsta stopp var útibú Glitnis í Mjóddinni þar sem komið var að útgjöldum! Borgaði skólagjöldin, rétt rúmlega 18þús kall! Sveiattann! Nú höfðum við smá tíma aflögu og héldum heim á leið. Ragga greyið var svo óheppin að fá flog þegar við vorum nýkomin heim, þannig hún lagði sig á meðan ég spilaði NBA 2K8, sem hún gaf mér í afmælisgjöf. Eftir um það bil hálftíma þurftum við að koma okkur af stað aftur því við áttum pantaðan tíma í klippingu kl. 15:00.

Blundurinn fór vel í Rögguna því hún var miklu hressari og gat farið til hárskerans með mér. Allt gekk það stórslysalaust, en ég efast þó um að fólk sjái mikinn mun á okkur, þar sem einfaldlega var um smávægilega snyrtingu að ræða hjá okkur báðum. En eins og ég minntist á í eldra bloggi er stefnan sett á að endurheimta Fabio titilinn!

Eftir klippingu héldum við rakleiðis í Krónuna að versla fyrir næstu daga og vorum þá búin að sinna öllum þeim erindum sem sinna þurfti. Um kl. 18:00 sótti ég tengdó í vinnuna og hún skutlaði mér aftur heim. Við steiktum okkur hamborgara og franskar í tilefni dagsins og gúffuðum í okkur græðgislega þangað til maginn sagði stopp! Kvöldið endaði svo á Simpsons maraþoni, klikkar aldrei!

Af Röggunni minni er það að frétta að flogaveikin hefur ekki verið jafn slæm langa lengi, og vildi flogalæknirinn hennar að hún færi í allsherjar skoðun, s.s. heilaskoðun, línurit o.fl. o.fl. Svona til að fill you in, þá greindist hún með heilaæxli við 12 ára aldur, sem var fjarlægt að mestu (náðist ekki allt) með aðgerð. Fyrir ekki svo löngu kom svo í ljós að þetta litla sem eftir var hafði horfið með tímanum hafði skilið eftir sig örvef. Long story short, þá vill flogalæknirinn ganga úr skugga um að æxlið sé ekki byrjað að myndast aftur, því við fréttum hjá lækninum að æxlið geti myndast aftur, þó líkurnar á því séu hverfandi. En better safe than sorry. Finnst samt alveg magnað hvað hún er búin að standa sig vel í skólanum þrátt fyrir 38 flog frá því í ágúst, bara níur og tíur í öllum áföngunum sem hún er í!

En nú er komið að tveimur nýjum liðum á síðunni! Spennt? Liðirnir eru:

* Uppfinning dagsins

* Hollráð gegn uppvakningum

Já það er allt að gerast hérna! Skulum byrja á uppfinningunni.

----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Uppfinning dagsins 14. desember 

- Snjóbrettastuðari (Snowboard Bumper)

Þessi liður mun sýna ykkur eina uppfinningu í hverri færslu. Uppfinningar þessar eru ekkert plat, þetta eru allt uppfinningar sem einkaleyfi hafa fengist fyrir. Hvort eitthvað af þessu hafi virkilega verið framleitt veit ég aftur á móti ekkert um. Þess ber að geta að myndirnar eru actual myndir sem skráðar voru með einkaleyfunum.

En fyrsta uppfinningin í þessum nýja og ferska lið er "Snjóbrettastuðari", eða "Snowboard Bumper" eins og hún kallast á enskri tungu. Ég held að ekki þurfi að fara mörgum orðum um tilgang þessarar uppfinningar, útskýrir sig nokkurn veginn sjálf. Hvað segið þið, eigum við eftir að sjá þetta í action í Bláfjöllum í náinni framtíð? Aðeins tíminn getur svarað þeirri spurningu!

 

 

----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Hollráð gegn uppvakningum

- Stutt hár og þröng föt 

Eins og margoft hefur komið fram þá átti ég afmæli þann 12. des, en Guðríður gaf mér ansi góða og gagnlega bók í afmælisgjöf sem ber heitið "The Zombie Survival Guide - Complete Protection From The Living Dead". Það væri ekkert nema sjálfselska ef ég myndi sitja einn að þessari uppsprettu visku, þannig ég ætla í hverri færslu að miðla smávegist visku úr bók þessari svo við getum í sameiningu varist gegn uppvakningum þegar tíminn kemur.

Ráð dagsins í dag tengist hárvexti og klæðaburði. Mælt er með að vera stutthærður og ætíð klæðast þröngum fötum. Sítt hár og víð föt geta reynst dauðagildra sem handfesta fyrir uppvakningana, meðan stutt hár og þröng föt gera þeim erfiðara fyrir með að ná taki á okkur.

Undirritaður ætlar að hafa ofangreint ráð í huga, en mun þó bíða með að breyta klæðaburði og klippingu þangað til hættan er orðin augljós.

----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Jæja.....sagði karlinn.....sagði svo ekki meira þann daginn. Ég er að slá öll persónuleg met á þessari síðu með super langri færslu! Ætla hér með að slá botninn í þessa örugglega allt of löngu færslu! Er farinn að efast um að þið hafið nennt að lesa þessi ósköp. Eða hvað? Allir sem lásu allt rétta upp hönd!

En komið nóg, endilega kommentið og látið í ykkur heyra!

Bless í bili! 


Fæðingardagur frelsarans

Í dag er dagurinn, fæðingardagur frelsarans! Ekki er það Jesúm Pétur ef þið hélduð það, heldur varð ég sjálfur 22 ára gamall um kl. 10:00 í morgun. Vildi nú bara kunngjöra alheiminum um fregnir þessar svo fólk geti haldið daginn hátíðlegan!

Heyrumst! 

Guffi ZzZ


Appú

Daginn daginn!

Ég ætla að hefja þessa færslu á smá sjálfsdýrkun, en ég vil hrósa sjálfum mér fyrir óbilandi dugnað í bloggeríinu! Ég held ég hafi aldrei verið jafn duglegur að blogga og ég er nú! En fyrir þá sem ekki vita þá er þetta mín fjórða bloggsíða. Hver síða hefur verið hjá sínum hvornum miðlinum. Fyrsta síðan var hjá Blogspot, svo var það blog.central, þar á eftir bloggar.is og nú er það moggabloggið blog.is. Verð að segja að ég kann best við moggabloggið af þessum fjórum síðum.

En að öðru. Skólinn er nú á lokastigi. Kláraði síðasta lokaverkefnið í dag og er þar með allri verkefnavinnu lokið í ár. Á bara eitt próf eftir 13. desember í MTG103 (Týpógrafía og grafísk hönnun), sem er í raun bara lítið próf sem var troðið í prófavikuna. Engar áhyggjur þar á ferð.

Framundan er svo eiginlega ekkert nema vinna vinna vinna, mikið að gera í desember og ég er að vinna næstu 5 helgar, auk 13 tíma vakt á Þorláksmessu og vinn aðfangadag! Eiginlega bara kvöldvaktir, þannig það er smá séns á að sólarhringurinn snúist kannski ofurlítið við. En það er ágætt fyrir okkur að fá smá aura í vasann, ekki veitir af, enda dýrir tímar framundan. 

Á morgun ætlum við hjúin að borga einhverjum manni til að ráðast að okkur með skærum og láta öllum illum látum, erum s.s. að fara í klippingu. Veitir ekki af, ég hef ekki farið í klippingu síðan ég snoðaði mig í sumar! Svo ég vitni í tengdamömmu: "Þú ert að verða eins og villimaður!". Gæti ekki verið meira sammála! En stefnan er þó að leyfa hárinu að vaxa og endurheimta minn gamla titil: Fabio!

Hmm, hvað hef ég meira að segja ykkur, veit ekki hvort það sé eitthvað. En fyrst ég minntist á í upphafi færslunnar á fyrri bloggsíður, þá vil ég koma með smá getraun fyrir ykkur, tryggu lesendur!

Hvað einkennir skrif mín á öllum fjórum bloggsíðunum mínum? Veit ekki hvort þið hafið tekið eftir þessu, en ætla bara að athuga hversu glögg þið eruð.

Segjum það að sinni, slæ botninn í þessa færslu með þessu annars ágætis quote-i:

"Friendship is like peeing on yourself: everyone can see it, but only you get the warm feeling that it brings."


Slagsmál við Draugabarinn

Oft hafa nú verið óeirðir á eða eftir skemmtanahald á Drauga, en ekki hef ég séð ummfjöllun um það á MBL.is áður. Þetta hlítur að hafa verið eitthvað svakalegt fyrst kallað var eftir sérsveit!

Vonum bara að það verði ekki einhverjir leiðinlegir eftirmálar af þessu leiðindaatviki sem gætu haft áhrif á framtíð Draugsa gamla, öflugasta skemmtistaðinn á öllu Suðurlandsundirlendinu!

Eru þetta tröppurnar á Draugabarnum? Er þetta gestur úr landi hinna dauðu? Eða er hann þessi einfaldlega orðinn glær af drykkju? Sumar ráðgátur lífsins leysast aldrei...

draugur_labbar_upp_stiga


mbl.is Slagsmál við Draugabarinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

10 Mánuðir

Vildi bara henda inn nokkrum orðum hérna og einni mynd í tilefni af 10 mánaða afmælinu hjá okkur. Verða reyndar ekki mörg orð, en Ragga er að klára að finna sig til og svo verður farið í verslunarleiðangur! Stefnan er að klára jólagjafakaup í dag, hvorki meira né minna!

En látum myndina tala, nenni ekki að skrifa meira...

10 Mánuðir (B&W)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband