Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2011

Eitt blogg á ári, eða svona hér um bil..

"Ég ætla ekki að vera svo djarfur að segjast ætla að blogga reglulega aftur, en kannski henda inn einni og einni línu hérna við og við."

Þetta er tilvitnun í sjálfan mig, en þessari þvælu ældi ég út úr mér í síðustu færslu. Augljóst er að ég hef ekki á nokkurn hátt staðið við ofangreinda fullyrðingu, því það eru jú þónokkur tungl síðan ég skrifaði hérna.

Ýmislegt hefur gengið á síðastliðna 9 mánuði en þar sem ég er latur ætla ég bara að drepa á því nýlega. Magdalena litla heldur áfram að stækka og braggast, en hún er að verða 1 árs þann 13. maí. Það er alveg ótrúlegt að hugsa til baka því þetta er búið að vera með ólíkindum fljótt að líða. Hún meira að segja tók sitt fyrsta skref fyrir ekki löngu síðan, en er ekki farin að labba enn. Það styttist samt í það, hún er komin á fullt, labbandi meðfram og fleira í þeim dúr.

Við fjölskyldan fluttumst síðan búferlum og erum nú komin í Árbæinn, nánar tiltekið í Hraunbæinn, og líkar vel. Þann 1. febrúar síðastliðinn fórum við Ragga yfir 4 ára línuna, en síðustu 4 ár hafa markað mikil kaflaskipti í mínu lífi og við gætum ekki verið ánægðari!

Nú í vor er ég svo að útskrifast úr sérnáminu í ljósmyndun, og ef allt gengur að óskum erum við á leið til baunaveldisins í haust. Svo er mál með vexti að ég er að sækja um í ljósmyndaskóla í Danmörku, nánar tiltekið Medieskolerne í Viborg, og komist ég þar inn hefst námið í haust. Ég fæ víst svar einhvern tímann í maí, þannig maður krossleggur fingur og vonar hið besta. Hér með óska ég eftir góðum straumum!

Um daginn setti ég svo upp vefsíðu (HÉR), en það var eitt verkefnið í skólanum. Þið megið gjarnan skoða og koma með athugasemdir ef ykkur finnst eitthvað ábótavant. Ég er algjör nýgræðingur í vefsíðugerð þannig það er örugglega hægt að finna eitthvað.

Svo var ég að græja svona "artist page" á Facebook, þar sem þið megið gjarnan like-a mig (HÉR) ef þið viljið. Þá fáið þið tilkynningar og svona um nýjar uppfærslur og fleira tengt því sem ég er að brasa í ljósmynduninni. 

Í dag var svo "litli" mágurinn minn hann Einar Gylfi að fermast. Falleg athöfn, fín veisla og drengurinn sáttur með daginn. Það er ekki hægt að biðja um meira.

Nú held ég samt að ég fari að hnýta fyrir þessa færslu. Er búinn að vera frekar tuskulegur síðan í gær og ætti að koma mér í bælið, sjá hvort ég geti ekki fest svefn og vonandi sofið þetta slen úr mér svo ég komist í skólann á morgun. Ég nefninlega lagði mig í kvöld eftir veisluna og er skyndilega ekki svo þreyttur...

Vil að lokum minna á Flickrið mitt, en það koma reglulega inn myndir þar. Ef þið like-ið Facebook síðuna fáið þið tilkynningar um nýjar uppfærslur, þannig ég hvet ykkur til að gjöra svo. Ég enda svo færsluna á mynd af fermingardrengnum, en það var jú ykkar heittelskaði bloggjöfur sem myndaði.

Meira....einhvern tímann...

5587104576_6f9b457b09_z


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband